Ívaf er lítið stúdíó á Ísafirði sem hannar og framleiðir einstaka prjónavöru sem einkennist af fallegum litasamsetningum og munstrum með spennandi áferð. Við leggjum mikið upp úr gæðum og vönduðum frágangi og vinnum eingöngu úr náttúrulegu hráefni, fyrst og fremst ull og silki. Við sendum hvert á land sem er. Fylgist með Ívaf á instagram eða facebook.
Ívaf is a tiny knitwear studio in Ísafjörður, a small fishing town in Iceland's remote Westfjords. We create wool garments using interesting textures and unusual colour combinations often in geometric patterns. All our products are hand finished at the studio. We ship worldwide. Follow Ívaf on instagram or facebook for regular updates.
Peysur // Sweaters
Vinnustofan
Vinnustofa Ívaf er að Suðurtanga 2 á Ísafirði. Þar eru vörurnar prjónaðar á nokkrar gamlar heimilisprjónavélar. Flíkurnar eru prjónaðar í stykkjum og sniðnar með úrtökum og útaukningum. Þetta gerir það að verkum að lítið sem ekkert fellur til við framleiðsluna nema nokkrir bandspottar.
Opnunartímar
Á vinnustofunni er hægt að skoða hvað er í boði, máta að vild og kaupa vörur, ef svo ber undir. Opnunartímar eru:
Mið/Fös: 12-14 | Fim: 16-18
eða samkvæmt samkomulagi (S: 774 1454).